Ferskt og brakandi
12.03.2006 00:19:19 / teron

Ætla að kveðja líka

Hef tekið eftir því hvað margir eru hættir hér á central. Enda ekki skrítið. Ég ákvað að fá mér nýtt svæði

Kíkið á mig á www.skellibjalla.wordpress.com.

Alltaf stuð þar- vonandi meira þar en hér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 02:00:59 / teron

HerreGud

Jamm og jæ og jeminn eini.

Haldið þið ekki bara að ég sé að öllum líkindum á leiðinni til Baltimore núna í lok maí. Við erum búin að vera að leyfa okkur að hugsa um það... og svo bara hviss bang búmm. Enda eru líka annað fólk í slagtogi við útlandapúkann í okkur. Það er nú ekki svo auðvelt að losna við þann púka- sérstaklega þar sem hann er nú svona eiginelga mjög velkominn á mínar axlir....

En þetta er að sjálfsögðu ekki alveg komið á hreint. Við þurfum að bíða og sjá hvort að shs ætli að halda eitthvað námskeið sem að Eyjó þarf að fara á þarna á sama tíma. Plís vonandi ekki, plís shs ekki gera það, hafði það bara vikuna á eftir.....

Kann einhver lesandi eitthvað á Baltimore, svona upplýsingar eins og hótel, veitingastaðir, moll og outlet væru mjög vel þegnar í annaðhvort kommentum eða emaili *blikk blikk blikk til allra*

Mig langar alveg rosalega mikið að komast til USA- verst að fara ekki með Saga Class aftur- en maður er nú ekki alltaf heppinn. Það verður gaman að fara í verslanir sem við náðum ekki að skoða síðast. Það verður gaman að keyra til D.C og skoða allt þar. Já þetta verður gaman, svo lengi sem að við förum.

OVER....


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 21:09:49 / teron

Barónessan er fædd

Þá er það komið, litla dama Unu og Krissa fæddis 0.15 í nótt og náði því að fá afmælisdaginn 07.03.06 sem er bara fín dagsetning. Litla dúllan var 17 merkur og 52 cm- soddan bolla. Ég vil bara óska henni Unu minni til hamingju með stúlkuna. Ég reyndi að hafa samband við hana í dag í gegnum sms- vildi ekki hringja ef ég væri að vekja hana. Svo hrigndi hún í mig þegar ég var á leið heim í dag. Ég sver það að það var annað hljóð í henni. Eigum við ekki bara að kalla það "mömmuhljóð". Mér finnst ekkert smá skrítið að Una sé orðin mamma, samt er ég búin að hafa næstum 9 mánuði til að venjast því. Ég hlakka bara til að fara hitta þær og Krissa líka náttúruelga. Hlakka til að gefa litlunni henni Höllu (haha, ég reyni endalaust að koma mínu nafni að) það sem ég keypti í dag fyrir hana.

Ég varð bara að koma þessu hér frá mér, fyrst að þetta blogg er svona hálfgert fréttaskeyti á milli Kópavogs og Preston....


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 22:03:35 / teron

Soccer-mom

Já ég verð nú eiginlega að taka undir með henni Unubunu um að ég sé orðin algjör "soccermom". Allavega er ég með fylgihlutina í það. Við litla fjölskyldan skruppum nefnilega í bíltúr í gær á Akureyri og splæstum í einn bíl. ÞAð er sko Stationbíll- ekkert smá soccermom- legt! En ég veit að einhverjir hugsa núna, ha, fóru þau alla leið á Akureyri til að kaupa sér bíl? og það er rétt. Við lögðum af stað kl 9 í gærmorgun og vorum komin í bæinn aftur rúmlega 19. Svo að við eyddum fínum laugardegi í bíltúr í 10 klst. Það var nú bara fínt sko, við fengum ofsalega gott veður og Tryggvi var bara í góðu skapi. Ég hafði kvöldinu áður sett fullt af barnatónlist inn á Ipodinn, svo hann bara skemmti sér konunglega auk þess að halda okkur félagsskap með frábærum samtölum og svona. Hann er náttúrulega algjör snillingur.

Annars er það helsta að frétta að ég fór og hitti eina litla dömu í dag. Litluna í Fífurimanum. Og jeminn eini hvað hún er sæt- ég er ekki frá því að hún sé bara alveg eins og föðurfjölskyldan- sem er náttúrulega góð fjölskylda til að líkjast. Svo þegar ég kom heim hringdi Una mín í mig til að afboða kaffiboðið sem ég var búin að bjóða henni í, í kvöld. Ástæða þess að hún afboðaði var sú að hún er búin að missa vatnið og var því á leiðinni upp á deild. Svo fékk í símtal seinna um að hún væri í mónitor svo nú bara bíð ég spennt heima. Verst að ég er að fara að vinna á morgun, ég var alveg óð í að bíða eftir símtali frá henni!

Og hvað er meira í fréttum? Man ekki neitt svona merkilegt. Jú kannski ég segi ykkukr frá því að fyrir 2 vikum þá gjörsamlega missti ég allt álit á sjónvarpstöðinni Sirkus. Ég sá þvo þætti sem að mér blöskraði svo hrikalega ða ég átti ekki bara til orð. Þetta voru Kallarnir og svo Splash- eða hvernig sem það er skrifað. Já Helgi minn! Ég má alveg hneykslast á þessu! Reyndar hafði ég nokkrum dögum áður misst andlitið yfir öðrum þætti sem ég veit ekkert hvað heitir. Svo lét ég og píndi Eyjó í að horfa á einn þessara þátta þegar hann var endursýnudr og hann meira að segja átti varla til orð. Ég er svo mikið að spá hvort að ekki sé hægt að fara með þetta lengra. Mig langar svo alls ekki að sitja á þessu. Allavega það sem að ég upplifði og sá vona ég að sonur minn muni ekki tileinka sér! Over my dead body sko! Ég er ekki alve gí ham núna til þess að útskýra mál mitt og færa rök fyrir þessu- geri það kannski seinna ef einhver vill heyra!

En jæja, þetta er orðið fínt í bili- heyrumst!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 23:04:44 / teron

Það berast endalaus klukk, kitl, hvísl og hvað þetta nú heitir til mín

Og því er um að gera að svara því samviskusamlega- svo að þið getið skemmt ykkur....

Fjögur störf sem ég hef unnið yfir ævina:
Hagkaup- í flestum deildum og skemmti mér vel

Esja- þar sem ég þjónaði stjörnum og almúganum

Vero Moda- don´t even talk about that

Lækjaborg- sem er besti vinnustaður í heimi!

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur
Grease- sem er bara klassík)

Sound of Music- það er bara eitthvað svo sætt við hana

Pretty Woman- Öskubuskudraumurinn í hnotskurn

Night in the Town- mynd sem ég hef ekki séð lengi en horfði á út í gegn í æsku

Fjórir staðir sem ég hef búið á
Eru þið ekki að djóka? Þarf ég að pikka 4 út af þessum 12 stöðum? okei þá

Reykjavík- æskan og æskuljóminn

Grafarvogur (líka í RVK, ég veit)- Gelgjan og allt það

101-105- og fór að skilja lífið

Kópavogur- komin í rólegheitin og lúxusinn.

 
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
CSI- þetta er bara snilld og minnir mig alltaf á Lexu mína

Law & Order- klikkar ekki, hvernig sem á það er litið

O.C- ég er sucker fyrir þeim þáttum

24- Nýtt áhugamál hjá mér!


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
USA- meira að segja tvisvar sinnum

Costa de Sol- útskrifarferðin var sko frí í lagi

London- það var hitiabyglja í gangi

Köben- sem er besta borg í heimi

og svo næstum allir staðir og bæjarfélög á Íslandi....

 
Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður)
barnaland.is- þú getur ekki án þess verið

hi.is- sérstaklega pósturinn

heimabanki.is- annars færi ég alltaf yfir á kortinu!

hotmail.com- gaman að sjá hver sendir næst brandara

 
Fernt matarkyns sem ég held uppá:
Rjúpur- bara bestar, sama hvað hver segir

Fiskur- sérstaklega minn réttur

Kjúlli- í allri sinni mynd

Dominos- þarf ekki að útskýra!

 
Fjórar bækur sem ég glugga í:
Barnabókin hans TGE, bæði handskrifuð og á netinu

Skóladagbókin- þar er allt mitt skrifað niður

svo eru það bara hinar ý´msu skóalbækur- glugga misoft í þær!

 
Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
San Fransisco-hef alltaf viljað fara þangað

Köben- fæ bara ekki leið á þeirri borg

Tjaldvagninn minn- einhvers staðar í góðum félagsskap

Sumarbústað með heitum potti og bjór o g flottu fólki

 

 



Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Helgi

Ylfa

Alex

Ragnhidur systir


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 10:54:39 / teron

Það eru allir að eldast....

Merkilegt nokk en svo er víst að gerast hér. Við Eyjó fórum í 30 afmæli síðustu helgi. Þetta er fyrsta 30 afmælið á þessu ári, af mörgum sem eiga eftir að verða á þessu ári. Til að mynda má nefna að minn ektamann, þarf líka að fagna þessum merka áfanga. En ég get beiðið róleg í smá tíma í viðbót- svona sirka bát 2 ár.....hahahaha Annars var bara fínt í þessu afmæli þarna. Það var haldið í sumarbústað rétt fyrir utan RVK. Það var glaumur og gleði, júróvisíon með Sylvíu Nótt í fararbroddi, góður grillmatur og fullt af bjór, einnig var nóg af hljóðfærum og söngubækur. Ekki má gleyma enn meiri bjór og svo heitum potti. Það var sem sagt allt sem ég óska til að geta skemmt mér fullkomlega. Enda gerði ég það líka og það eina sem ég fann fyrir að morgni sunnudags, voru sár raddbönd- enda er stelpan þekkt fyrir að þenja þau þegar aðstæður og tími gefast! En svona að öðrum málum. Hýbýli okkar í Kópavoginum eru að taka á sig betri og betri mynd með hverjum deginum. Til dæmis fórum við í vikunni og kláruðum að kaupa gardínur í gluggana. ÞAð vantaði alltaf að kaupa í stofuna. Svo festum svo upp rúllurgardínur og festum einnig upp festingar fyrir eldhúsgardínurnar. Nú þarf ég bar að koma mér í það að sauma! Jamm þið lásuð rétt. ÉG þarf að fara að SAUMA og það er nú ekki beint það sem ég kann. Enda hef ég ekki saumað síðan í handmennt í 10. bekk í Foldó! En ég ætla að notfæra mér aðstöðu mína og á morgun þegar við brunum til ömmu og afa í afmælið ætla ég að bikka einhvern þar og laumast upp á háaloft og kveikja á gömlu saumavélinni. Þetta´ætti nú ekki að vera mikið mál, falda og sjæna 3 stykki gardeínur! Iss fer létt með það! Kallinn er að vinna í dag, og það litla sem ég hata helardagvaktir. Jeminn eini, ég bara gjörsamlega þoli þær ekki. Vildi frekar að hann væri alltaf á helgarnæturvöktum! Nei segi nú bara svona. En við pjakkmundur ætlum að hitta vini okkar í dag sem eru í bæjarferð frá Egilstöðum. Ætlum að skella okkur með þeim í sund. Það verður stuð- enda er pjakki búionn að biðja um að fá ða fara í sund síðan að við fluttum. Ástæða þess er sú, að eftir að hann fór að far aí bað á hverjum degi þá er hann að æfa sig í að kafa og er orðinn nokkuð fær í þeim efnum. Honum langar svo að fá að kafa í stærra vatni- og þess vegna er sundlaug alveg tilvalið tækifæri í þá tilraunastarfsemi. En jæja nóg komið í bili over & out

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 20:56:01 / teron

Nýtt nýtt nýtt

  1. Hver ert þú?
  2. Erum við vinir?
  3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
  4. Ertu hrifin/nn af mér?
  5. Langar þig að kyssa mig?
  6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
  7. Lýstu mér í einu orði.
  8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
  9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
  10. Hvað minnir þig á mig?
  11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
  12. Hversu vel þekkiru mig?
  13. Hvenær sástu mig síðast?
  14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
  15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 11:04:21 / teron

Úrslit og fréttir

Jæja jæja, ég hef þá farið yfir þessi svör sem mér bárust frá ykkur og verð að segja að það er enginn einn sigurvegari, en ef við blöndum þessum svörum saman, þá flst hin rétta útkoma.....Ásdís var þó nálægt því en hún gleymdi einni spurningu og eitt svarið var ekki alveg rétt! Hinir voru með flest allt rétt en þó var svona smá og smá sem var vitlaust.... en allavega.................................. ÉG ER FLUTT OG OH MY GOD SKO.... þvílík viðbrogiði og þvílík keysrla sem er búin að vera á manni. Ég er semsagt að taka upp tölvuna í fyrsta sinn í dag síðan við fluttum og var með 48 mail á hotmail og 45 mail á hi... svo það var sko vinna að vingsa úr þessu. Ég komast að því að af þessum rúmlega 100 póstum voru innan við 20 sem að ég hafði þurft a' sjá, restin voru tilkynningar frá hinum ýmsu stofnunum og síðum. Gaman af því!!! Annars er bara fínt að búa í Kópavogi þó svo að ég sé hálftíma í vinnuna þegar ég þarf að skila pjakkmundi af me´r fysrt. En maður kemur þá allavega vel vaknaður til vinnu. Einmitt, ég er að tala um vinnu, ég vefnilega vinn tvo daga í viku, er í skólanum tvo daga í viku og tek mér svo einn frídag, sem vill svo skemmtilega til að sé föstudagur. Þann dag ætla ég að nota í að læra og stússast..... En ég nenni ekki að skrifa meira núna, vildi bara rétt láta heyra í mér. Við tengdum netið í gær og svo nenntum við ekki að taka tölvuna upp, svo það kemur í ljós í kvöld hvort að netið virkar... Stuð! Kveðja HH

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 20:51:58 / teron

Gleðilega hátíð

Já gleðilega hátíð allir saman. Ég hafði það fínt...nenni ekki að skrifa um það allt hér. En allavega, svona í tilefni áramóta, þá langar mig að vera með smá keppni.

Sá/sú sem getur svarað felstum spurningum um mig rétt fær óvænt verðlaun! Tilbúin....

1. Hvaða stöðu sótti ég nýlega um?

2. Hvað hef ég verið mörg ár í HÍ?

3. Hvort er ég með marglitar eða einlitar seríur á jólatrénu mínu?

4. Á hvaða hæð er nýja íbúðin?

5. Hvað þoli ég ekki?

6. Uppáhalds TV-þátturinn minn?

7. Uppáhalds maturinn minn?

8. Hvað eldaði ég upp á eigin spýtur í fyrsta skipti núna um jólin?

9. Hvað ætla ég að gera í haust?

10. Hver er bestur?

Jáhá og getið þið núna!


» 71 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 01:04:16 / teron

Jólin jólin jólin koma brátt

Kæru vinir, vildi bara óska öllum gleðilegra jóla. Það er allt tilbúið hjá mér- ekki það að ég hafi eitthvað verið að stressa mig á því að gera fullt. En það sem var á dagskrá er komið og ég er tilbúin. Nenni nú eiginelga ekki ða bíða til morguns, vil bara klára þetta af núna. En ég verð víst bara að taka þessu róelga og bíða og bíða. Það er nú ekki það að ég sé eitthvað mega spennt. Vil bara klára það sem er á dagskrá.....

Allavega, langaði bara að óska ykkur gleðilegra jóla og ég vona að þið hafið það bara gott.

HH


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 21:10:15 / teron

SNILLLLD

Það hlaut að koma að því að ég fyndi eitthvða sniðugt að gera... annað en að læra, svona í lok próftímabils... Enjoy.....

1. The raisin at the end of the hot-dog = Rúsínan í pylsuendanum. 
2. I measure one-pulled with it = Ég mæli eindregið með því. 
3. Now there won't do any mitten-takes = Nú duga engin vettlingatök. 
4. I come completely from mountains = Ég kem alveg af fjöllum. 
5. Thank you for the warm words into my garden = Þakka þér fyrir hlý orð í minn garð. 
6. Everything goes on the back-legs = Það gengur allt á afturfótunum. 
7. He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka. 
8. It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi. 
9. She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn. 
10. He stood on the duck = Hann stóð á öndinni. 
11. I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann. 
12. On with the butter!!! = Áfram með smjörið!

13. In a green bang = Í grænum hvelli
14. I springteach him = Ég vorkenni honum
15. Front seat advise Sir = Forsætisráðherra
16. Stomp steel into them = Stappa stálinu í þá
17. Hot spring river this book =Hver á þessa bók

18. Are you from you = Ertu frá þér

19. You are painting the devil on the wall now = Þú er að mála skrattann á vegginn

20. One wave is not single = Ekki er ein báran stök
21. The oar teaches a evil rower = Árinni kennir illur ræðari
22. He is very outside himself = Hann er mjög utan við sig
23. This does not go between languages = Þetta fer ekki á milli mála
24. He is standing outside the lot = Honum stendur úti á hlaði

25. Nobody becomes an unbeaten bishop= Enginn verður óbarinn biskup
26. I took him to the bakery = Ég tók hann í bakaríð
27. I will find you on a beach = Ég mun finna þig í fjöru
28. To put someone before a cats nose = Að koma einhverjum fyrir kattarnef

29. He doesn't walk whole to the forrest = hann gengur ekki heill til skógar
30. I won't sell it more expensive than I bought it= Sel það ekki dýrara en ég keypti það

31. Lonely standing mother= einstæð móðir

32. I only pay with an angry sheep - Ég borga bara með reiðufé

 

 


» 51 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 11:39:13 / teron

Tækniframfarir

Já tæknin er stórkostleg- ég get nú ekki sagt annað. Eftir að nokkur leiðindakomment sem gera ekkert fyrir mann annað en að pirra mann og skemmtanagildið er löngu fallið úr þá gafst ég upp og leitað þessa "vini" mína uppi. Það er nefnilega svolítið til sem að heitir IP-tala og sést þessi tala við hvert komment. Svo Særún, Katarína, Jói sæti, Jói gangavörður, Hissa, hissa, hissa, Siggi sæti og fleiri vinir mínir eru ekki svo margir einstaklingar. Kannski bara fólk með marga persónuleika. Nenni ekki að standa í þessu. Þetta er ekki fyndið lengur- það var það fyrir nokkrum vikum síðan en nú er þetta djók dautt- búið að skemma skemmtunina algjörlega.

En allavega, út í aðra sálma. Heimaprófið er bara stuð eftir allt- eða þannig séð. Mér finnst þetta bara svo drepleiðinlegt að það er engu lagi líkt. Langar bara að fara í jólafílinginn. Jólin eru á næsta leiti og þá verður gaman. Ég er búin að ákveða allar jólgjafir sem eftir eru- nema tvær, fyrir systu og kallinn. Svo þetta verður rólegur jólaundirbúningur-rólegur og næs.

Well þar til næst...blessó


» 55 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 23:00:44 / teron

Var víst búin að lofa...

...prófabloggi í kringum 10. des og það er einmitt í dag! Eða er það kannski á morgun- eða var það jafnvel kannski í gær. Ég er sem sagt orðin fremur rugluð núna er ekki alveg með tímatalið á hreinu- en ég veit að það er laugardagur, svo þið bara finnið út sjálf hvaða dagsetning er.

En allavega, þær fréttir eru þær að ég er í Odda. Kemur á óvart- eða hvað? Ég sit hér ein á borði. Ásdís á næsta borði. Ekki misskilja mig, það er ekki það að við séum orðnar óvinkonur. Við erum bara að vinna að heimaprófi og megum ekki hjálpast að. Eða kannski er best að segja rétt frá, hún er að vinna í heimaprófinu sínu en ég get ekki byrjað á mínu fyrr en eftir kvöldmat á mánudaginn. Þetta er vegna þess að ég er að læra fyrir annað próf núna sem er einmitt eftir hádegi á mánudaginn.

Oh, ég hata próf sem eru eftir hádegi. Finnst bara að það eigi að banna það- eða réttast væri bara að fella niður þetta asnalega fyrirbæri sem kallast próf og kennarar halda að sé einhver mælikvarði á það sem maður kann. Bull og vitleysa. Heimapróf eru þó skárri kostur, ef maður er ekki í fleiri prófum á sama tíma. Ég hef sagt það áður og segi það enn að þegar ég verð orðin menntamálaráðherra þá legg ég það til að próf verði lögð niður. Og hana nú!

Ég er búin að vera í Háskólanum í 3 og hálft ár. Það þýðir 7 annir, sem þýða þá líka 7 próftímabil. Þetta er 7 tímabilum of mikið. Plús það að þetta tímabil, þetta sjöunda próftímabil er það lang versta í sögu minni í Háskólanum. Yfirleitt hefur þetta gegnið ágætlega svona fjölskyldulega séð- enda hefur tímabilið verið svo lang að maður hefur alltaf haft góðan tíma og fína pössun og Eyjó hefur yfirleitt verið á heppilegum vöktum. En Adam er nú ekki alltaf lengi í Paradís ;) Því þetta tímabil er það hörmulegasta sem ég hef reynt. Mesta álagið er núna þessa helgi og fram á næstu og þá þurfti Eyjó akkúrat að vera á næturvöktum. Það hefði verið skömminni skárra, hefði hann verið á dagvakt- en svona er þetta. Enda þýðir þetta að ég er búin að vera á fullu að redda pössun fyrir erfðarprinsinn- út um allt. Það er alveg ofsalega leiðinlegt skal ég ykkur segja. En ég nenni ekki að tala um það núna, eyddi allt of miklum tíma í það í dag!

Annar hef ég ekkert meira að segja, prófandinn er ekki kominn yfir mig, það eru engar fleygar setningar farnar að velta upp úr mér- en bíðið bara það kemur að því. Ég bið ykkur því bara vel að lifa og vil koma því til skila að samskiptaþroski er mikilvægur ef ekki mikilvægastur af öllu í uppeldi barna. Þið þurfið bara að muna að með leiðandi uppeldi er hægt að ná sem bestum árangri með börnin ykkar og að það er kostur ef þau geta sett sig í spor annarra og sýnt samúð, góðvild og allskonar fleira djö...kjaftæði sem allir vita, en maður þarf að eyða tíma í að skilja til hlíta svo að maður falli ekki.

Over and out- í bili


» 75 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 14:42:15 / teron

Leiði dauðans

Djöfull leiðist mér núna. Ég sit uppi í skóla, reyndar með fullt af fólki. Helga bró, Drífu, Ástunum tveim og Kötu. Það eru allir svakalega duglegir að læra- allir komnir í próflestur- allir nema ég. Því að ég er enn í verkefna vinnu. Fyrir þessa helgi lágu fyrir tvö verkefni. Ég er komin vel af stað með fyrra, búin að gera minn hluta í því, ætla reyndar að senda það á hópinn til að athuga með gæðin. Svo það er frá í bili. Svo er það hitt verkefnið, sem er ritdómur. Það átti að skila honum fyrir 2 vikum, ég setti alveg í 5 gír og kláraði bókin á mettíma og allt hvað eina. En hvað svo, skyndilega ákvað kennarinn að lengja tímann til 10.desember og hvað gerist þá. Jú auðvitað- maður bara frestar hlutunum. Svo til að toppa allt, þá man ég ekki helminginn af bókinni, því það er svo langt síðan að ég las hana. En til allrar hamingju þá skrifaði ég nú hjá mér mikilvægustu atriðin- annars væri ég bara totally lost.

En allavega, mér leiðist þetta alveg óstjórnlega. Mig langar að gera tvennt í dag. Annað hvort að fara bara með Ásdísi á Hressó að læra. Ég veit að það eru ekki margir sem hafa trú á því að við lræum þar, en það er nú bara svo að við gerum það. Bestu ritgerðir okkar hafa verið skrifaðar þar og það hefur margt vitrænt komið yfir okkur þar. En helst myndi ég þó vilja vera með pjökkunum mínum í dag. Bara að stússast með þeim, kannski taka smá jólafíling og skoða í búðir og kaupa jólaskraut. Svo væri ég líka til í að fara í innréttingabúðir með þeim og skoða fallegar bað og eldhúsinnrétingar fyrir nýju íbúðina. En neibb, það er ekki hægt, af því að ég það er nú kominn þessi tími ársins, þar sem maður ver öllum sínum studnum í skólanum í lærdóm. Á þessum árstíma hlakka ég alltaf jafn mikið til þegar ég er búinn í skóla, en svo bara vel ég mér alltaf nýtt og nýtt  nám og hætti aldrei- held endaluast áfram. Kannski enda ég bara með doktorsgráðu eins og ég var búin að lofa mér að gera ALDREI. Nei bara segi svona...

Annars ætla ég að taka smá tíma með strákunum á morgun. Það er opið hús heima út af sölunni frá kl. 15.00 og þá ætlum við niður á Austurvöll að kíkja á jólastemmninguna. Enda á að kveikja ljósin á Oslóartrénu. Svo ætla einhverjir sveinkar að mæta á svæðið líka. Um að gera ða fara með litla pjakka á svona uppákomur.

Well, lofa hér með stuðprófabloggi næstu dagana, en þó frekar þegar nær dregur 10.des....


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 14:12:53 / teron

Afmælisfréttir

Haldið þið ekki bara að við Eyjó höfum átt 6 ára afmæli á sunnudaginn. Við gerðum nú kannski ekki mikið úr því- enda er það ekki vaninn hjá okkur. Ég veit við erum ofsalega rómantísk. En við gerðum þó eitt, daginn eftir afmælið shoppuðum við eitt stykki íbúð.

Jamm, svo við fáum afhent um miðjan janúar svo nú þarf aldeilis að setja í 7.gírinn. Það á eftir að selja okkar, gera helling, redda fullt og reyna að læra fyrir próf í leiðinni og undirbúa jóliln og allt það.

Já já þetta verður gaman. Ég er sem sagt að fara að verða Kópavogsbúi....


» 82 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11